Þrír karlmenn tóku mann með ofbeldi í Hólahverfi í Breiðholti í nótt og börðu hann áður en þeir fluttu hann nauðugan inn í bíl og óku á brott, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Sjónvarvottur sá númerið á bílnum og lét lögreglu vita, en bíllinn var stöðvaður á Reykjanesbraut, nálægt Hafnarfirði. Lögregla handtók mennina þrjá og frelsaði manninn sem varð fyrir ofbeldinu.
Að sögn lögreglu er málið í rannsókn.