Litlar breytingar eru á fylgi flokkanna í nýjum Þjóðarpúls Gallup, sem sagt var frá í fréttum Útvarpsins. Fylgi Sjálfstæðisflokkurinn mælist 37% en fylgi Samfylkingarinnar mælist 33%, 2 prósentum minna en fyrir mánuði. Ríkisstjórnin nýtur stuðnings 70% kjósenda.
Fylgi VG mælist nú 17%, Framsóknarflokksins 8% og Frjálslynda flokksins 5%. Fylgi Íslandshreyfingarinnar mælist varla.