Lögregla á höfuðborgarsvæðinu mun hafa kallað eftir kranabílum til að leysa úr umferðarhnút sem myndast hefur í Ártúnsbrekkunni í Reykjavík vegna aðgerða vörubílstjóra.
Samkvæmt heimildum blaðamanns mbl.is, sem er á staðnum, eru tuttugu til þrjátíu vörubílar sjáanlegir þar og er Ártúnsbrekkan lokuð til austurs. Þá virðast bílstjórarnir einnig vera að reyna að loka henni til vesturs.