Stefnt er að því að halda mótmælafund á Austurvelli klukkan 16 á morgun þar sem háum álögum á eldsneyti er mótmælt, samkvæmt vef ferðaklúbbsins 4x4. Þar kemur fram að auk félaga atvinnubílstjóra komi almennir borgarar og fjölmörg áhugafélög að undirbúningi mótmælanna.