Orkuveita Reykjavíkur segir ljóst, að viðgerð á háspennustreng sem bilaði fyrir um klukkustund, taki a.m.k. þrjár klukkustundir. Á meðan verði rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Kjalarnesi, Grafarholti og hluta af Grafarvogi.
Verið er að vinna að viðhaldi á háspennustreng frá Geithálsi að tengivirkinu í Korpu og því er hann ekki tiltækur til þess að tengja framhjá biluninni.