Talsmaður ferðaklúbbsins 4x4 býst við miklu fjölmenni á Austurvelli þar sem boðað hefur verið til mótmæla síðdegis gegn háu eldsneytisverði. Félagið styður kröfur atvinnubílstjóra um að álögur ríkisins á eldsneyti verði lækkaðar verulega.
Um kl. 15:30 mun bílalest leggja af stað frá Klettagörðum og aka í hægagangi eftir Sæbraut í átt að Austurvelli, þar sem skorað verður á stjórnvöld að lækka álögur á eldsneyti. Mótmælin hafa verið kynnt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og verður hún með auka mannskap á svæðinu við umferðareftirlit.
Aðrar helstu sjónvarpsfréttir mbl:
OR til Djíbútí
Úthugsað bankarán
Umræða um verðhækkanir gæti verið lögbrot
Beðið eftir kosningaúrslitum í Simbabve
Ekki hefur verið samið um starfslok sýslumanns á morgun.