„Það á aldrei að vera fyrsta ráðstöfun hjá neinu fyrirtæki að hækka verðið,“ segir Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA. „Það má ekki velta öllu beint út í verðlagið. Íslenski neytandinn er bara því miður vanur því að láta valta yfir sig,“ segir Þórarinn.
Ástæðuna fyrir því að IKEA þarf ekki að hækka verðið segir hann að þegar verð í vörulistanum er ákveðið að vori sé reynt að reikna út líklegt miðgengi. Við óbreyttar aðstæður muni þó einhverjar hækkanir verða hjá IKEA í næsta vörulista. „Það sem verra er er að allt heimsmarkaðsverð er að hækka sem þýðir að allur framleiðslukostnaður hækkar.“ Þórarinn segir verðbólguna fara upp úr öllu valdi ef allir hækki nú verð um 30%. „Það er ábyrgðarleysi hjá öllum að spila með í þessari vitleysu.“