Lögreglan leitar innbrotsþjófa

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn tveggja manna, sem brutust inn í skartgripaverslun í miðborginni og höfðu á brott með sér á annan tug armbandsúra af Raymond Weil og Revue Thommen gerð.

Myndir náðust af þjófunum á öryggismyndavél í versluninni og hefur lögreglan sent frá sér myndir úr upptökunni af öðrum manninum. 

Þeir sem telja sig þekkja manninn eða búa yfir upplýsingum um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1100.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert