Nefnd um þróun Evrópumála hélt fund með ráðherrum

Fánar Evrópusambandsins blakta utan við höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB í Brussel.
Fánar Evrópusambandsins blakta utan við höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB í Brussel. mbl.is/GSH

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, áttu í dag fund með nýskipaðri nefnd um þróun Evrópumála.   Formenn nefndarinnar eru Illugi Gunnarsson alþingismaður, skipaður af forsætisráðherra, og Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður, skipaður af utanríkisráðherra.  Í nefndinni eru einnig fulltrúar stjórnmálaflokka, sem eiga sæti á Alþingi, einn frá hverjum flokki.  Auk þeirra eru Alþýðusamband Íslands, Samtök opinberra starfsmanna, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands, með einn fulltrúa hvert.

Verkefni nefndarinnar eru m.a að fylgja eftir tillögum Evrópunefndar frá mars 2007 um aukna þátttöku stjórnmálamanna og embættismanna í hagsmunagæslu tengdri Evrópustarfi.  Að framkvæma nánari athugun á því hvernig hagsmunum Íslendinga verði best borgið í framtíðinni gagnvart Evrópusambandinu, á grunni niðurstaðna Evrópunefndar frá mars 2007 og að fylgjast með þróun mála í Evrópu og leggja mat á breytingar út frá hagsmunum Íslendinga.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir „nefndin ákveður sjálf hvaða málaflokka hún tekur fyrir. Áhersla skal lögð á beina miðlun upplýsinga til og frá stofnunum á Evrópuvettvangi en nefndin skal, eftir því sem tilefni er til, standa fyrir útgáfu, samráðsfundum með hagsmunaaðilum og heimsóknum erlendra sérfræðinga. Nefndin skal starfrækja vefsíðu þar sem starfsáætlun, fundargerðir og ítarefni er birt.  Nefndin skilar ríkisstjórninni skýrslu árlega. Hún starfar á vegum forsætisráðuneytis en
utanríkisráðuneytið og sendiráð veita nauðsynlega aðstoð.  Skipunartími nefndarinnar er frá 1. febrúar 2008 til 1. febrúar 2011."

Nánari upplýsingar um nefndina er að finna á vef Stjórnarráðs Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert