Allir lækka nema Skeljungur

N1 veitir 25 króna afslátt af eldsneytisverði í dag.
N1 veitir 25 króna afslátt af eldsneytisverði í dag. mbl.is/Frikki

Eldsneytisverð hefur verið lækkað hjá öllum olíufyrirtækjunum á Íslandi nema Skeljungi í dag. Kostar lítir af 95 oktana bensíni nú 129,40 krónur og lítir af dísilolíu 138,40 krónur. Samkvæmt upplýsingum frá Skeljungi stendur ekki til að lækka eldsneytisverð þar í dag.

N1 reið á vaðið í morgun er félagið lækkaði verðið um 25 krónur á öllum bensínsstöðvum félagið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert