Auglýst eftir lögreglumönnum

mbl.is/Július

Þessa dagana auglýsir ríkislögreglustjórinn lausar stöður 32 lögreglumanna hjá fjórum lögregluembættum. 18 stöður eru fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, 12 fyrir lögregluna á Suðurnesjum, ein staðan er á Blönduósi og staða lögregluvarðstjóra á Egilsstöðum.

 Í frétt frá Lögregluskóla ríkisins sem birtist á lögregluvefnum á sunnudag kemur fram að væntanlega munu 78 lögreglumenn brautskrást frá grunnnámsdeild skólans á þessu ári, sem er um 10% af öllu lögregluliðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert