Ekið var á barn á unglingsaldri á Skeiðarvogi við Vogaskóla um klukkan hálf níu í kvöld. Farið var með barnið á slysadeild en ekki er vitað hversu alvarleg meiðslin eru á þessari stundu. Rannsóknarnefnd umferðaslysa var kölluð á staðinn og rannsakar hún tildrög slyssins.
Þegar þetta er ritað er skammt síðan slysið varð og tildrög þess eru ekki að fullu kunn. Barnið mun hafa verið í hópi með félögum sínum er slysið varð.