Fimm fíkniefnamál í Reykjavík

mbl.is/Július

Fimm fíkniefnamál komu upp í Reykjavík á síðastliðnum tveim dögum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.   Tveir karlmenn, annar um þrítugt en hinn nokkru yngri, voru handteknir í miðborginni síðdegis í gær en báðir voru með ætluð fíkniefni í fórum sínum.  Mennirnir tóku afskiptum lögreglu mjög illa og höfðu í hótunum.  Til átaka kom og svo fór að beita þurfti varnarúða til þess að hemja annan þeirra en sá hafði slegið lögreglumann í höfuðið.

Í fyrrinótt hafði lögreglan afskipti af tveimur öðrum mönnum í miðborginni.  Annar þeirra var með ætluð fíkniefni í fórum sínum en hinn var með blóðugan hníf meðferðis. Mennirnir, annar á fertugsaldri en hinn um tvítugt, voru báðir færðir á lögreglustöð en sá eldri reyndist jafnframt eftirlýstur fyrir aðrar sakir.

Þá komu þrír karlar við sögu hjá lögreglu í jafnmörgum fíkniefnamálum í fyrrakvöld en þeir voru allir stöðvaðir í Breiðholti.  Tveir þeirra, 17 og 20 ára, voru með marijúana í fórum sínum. Þriðji maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, er einnig grunaður um fíkniefnamisferli.  Sá var einnig með ýmsa hluti, m.a. nokkur greiðslukort, sem hann gat ekki gert grein fyrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert