Ráðherra vill ekki óheftan innflutning

Svínabændur óttast um afkomu sína verði tollar á innfluttu kjöti …
Svínabændur óttast um afkomu sína verði tollar á innfluttu kjöti lækkaðir.

Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segist ekki styðja það að innflutningur á svínakjöti og kjúklingakjöti verði gerður óheftur.

Yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur hafa lagst mjög illa í forsvarsmenn bænda sem hafa sagt að með því að lækka tolla verulega á innflutning þessara kjötvara sé verið að slá af atvinnugreinarnar með einu pennastriki. Hugmyndir Ingibjargar séu óábyrgar.

Ekki farið í stórfelldar lækkanir

Tollar á innfluttar landbúnaðarvörur voru lækkaðir um fjörutíu prósent í fyrra með samningum við Evrópusambandið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert