Sekt í fíkniefnamáli

Tveir karlmenn um tvítugt voru í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag dæmdir til að greiða sekt fyrir vörslu fíkniefna og umferðarlagabrot á Akureyri í febrúarmánuði.

Annar mannanna skal greiða 30.000 króna sekt til ríkissjóðs en hinum er gert að greiða 60.000 króna sekt til ríkissjóðs. Jafnframt voru 2,67 grömm af hassi gerð upptæk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert