Lögregla hefur takmarkað umferð um þær götur sem standa næst Alþingishúsinu vegna orðróms um að atvinnubílstórar ætli að efna þar til mótmælaaðgerða í dag.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu verður götum þó ekki alveg lokað þar sem jarðarför fer m.a. fram í Dómkirkjunni. Stórum bílum verður hins vegar ekki hleypt inn á svæðið.