Féll úr bíl eftir handalögmál

mbl.is/Július

Umferð um Sæbraut í Reykjavík stöðvaðist um stundarsakir nú síðdegis þegar kona féll þar út úr bifreið, eftir að til handalögmála hafði komið milli farþega í framsæti. Að sögn sjónarvotta mátti litlu muna að vörubíll sem kom aðvífandi æki yfir konuna. 

Ekki liggja enn fyrir upplýsingar um aðdraganda málsins, eða hvort konunni varð meint af byltunni. Lögreglan hefur málið til athugunar.

Atvikið átti sér stað á Sæbraut skammt vestan við gatnamót Snorrabrautar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert