Lífslíkur karla hérlendis hafa batnað meira en kvenna á undanförnum áratugum. Nú er svo komið að íslenskir karlar verða karla elstir í heiminum, 79,4 ára. Hið sama verður ekki sagt um konur en þær geta vænst þess að verða 82,9 ára. Lengi vel voru lífslíkur íslenskra kvenna hærri en annars staðar í heiminum en nú lifa konur nokkurra þjóða lengur en kynsystur þeirra á Íslandi. Þetta á einkum við um Japan, en meðalævilengd japanskra kvenna er nú 86 ár.
Samkvæmt vef Hagstofu Íslands dóu árið 2007 1.942 einstaklingar með lögheimili á Íslandi, 1.002 karlar og 940 konur. Dánartíðni var 6,2 á hverja 1.000 íbúa.
Eins og annars staðar í heiminum er meðalævilengd karla styttri en kvenna. Íslenskir karlar geta nú vænst þess að verða 79,4 ára gamlir en konur 82,9 ára. Á undanförnum áratugum hefur dregið nokkuð saman með kynjunum í meðalævilengd. Á sjöunda og áttunda áratug var um sex ára munur á ævilengd karla og kvenna en er nú einungis 3,6 ár. Svipaða þróun má greina annars staðar í Evrópu, einkum á Norðurlöndunum. Af Norðurlöndunum utan Íslands er þessi munur minnstur í Svíþjóð, 4,4 ár.