Lítil meiðsl í umferðarslysi á Suðurlandsvegi

Frá slysstaðnum við Sandskeið
Frá slysstaðnum við Sandskeið mbl.is/Július

Þrír voru fluttir á slysadeild Landspítalans í morgun eftir umferðarslys á Suðurlandsvegi á níunda tímanum.  Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum var um lítil meiðsl að ræða.  

Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi við Sandskeið kl. 08.20 þar sem tilkynnt var um þriggja bíla árekstur og valt ein þeirra.  Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þurfti að klippa einn út úr einni bifreiðinni og var hann fluttur á sjúkrahús ásamt tveimur öðrum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert