Búið er að opna fyrir alla umferð á Suðurlandsvegi við Sandskeið vegna umferðarslyss sem varð þar í morgun og er umferð komin í eðlilegt horf. Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi við Sandskeið kl. 08.20 þar sem tilkynnt var um þriggja bíla árekstur og valt ein þeirra.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þurfti að klippa einn út úr einni bifreiðinni og var hann fluttur á sjúkrahús ásamt tveimur öðrum. Ekki er vitað nánar hve alvarleg meiðsl þeirra eru.