Umhverfismat staðfest af umhverfisráðherra

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur með úrskurði staðfest ákvörðun Skipulagsstofnunar um umhverfismat álvers í Helguvík. Hún fellst því ekki á kæru Landverndar sem vildi láta ógilda umhverfismatið og framkvæma heildarumhverfismat fyrir álver, virkjun og flutningslínur. Þetta kom fram í fréttum RÚV klukkan 16. Verið er að kynna úrskurð ráðherra  á blaðamannafundi í umhverfisráðuneytinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert