Ríkissaksóknari hefur mælst til þess við lögreglustjóra að þeir afli einungis vottorðs um magn ávana- og fíkniefna í blóði einstaklinga sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum, en ekki jafnframt í þvagi. Þrátt fyrir það hafa mörg embætti gefið út ákærur byggðar eingöngu á niðurstöðum þvagsýna.
„Þeir hafa komist að þeirri niðurstöðu, að menn séu undir áhrifum, þó að þeir séu það í raun ekki,“ segir Brynjar Níelsson lögmaður sem hefur verið manna ötullastur við að benda á þann galla á umferðarlögum, að hægt sé að sakfella ökumann fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, þegar aðeins finnast umbrotsefni fíkniefna í þvagi – sem bendir til að viðkomandi hafi neytt fíkniefna einhverju sinni, en ljóst að hann sé ekki lengur undir áhrifum – og hann því fær um að stjórna ökutæki. „Menn verða að skilja það, eins og Jakob Kristinsson, dósent í lyfjafræði, hefur bent á, að mennirnir eru ekki undir áhrifum, þó svo að lögin segi það. Allir skynsamir menn sjá þetta.“
Um þessar mundir vinnur nefnd á vegum samgönguráðherra að endurskoðun umferðarlaga. Í forsæti er Róbert R. Spanó lagaprófessor og segir hann ljóst að við þá vinnu verði tekin afstaða til þess hvort breyta eigi orðalagi ákvæða 45. gr. umferðarlaga, þar sem fram kemur að ef ávana- og fíkniefni mælast í blóði eða þvagi ökumanns teljist hann undir áhrifum.„Leitast verður við að haga orðalagi ákvæðisins þannig, að það nái því markmiði sem að er stefnt með þessum ákvæðum, þ.e. að koma í veg fyrir að þeir stjórni ökutækjum sem eru til þess ófærir, á þeim tíma sem akstur á sér stað,“ segir Róbert. Gert er ráð fyrir að nefndin ljúki störfum í lok árs.
„Þessir tveir dómar Héraðsdóms Vestfjarða eru mjög skrýtnir og alls ekki í samræmi við ríkjandi dómaframkvæmd í þessum efnum. Hér hjá okkar embætti hafa ca. 140 mál sem varða akstur undir áhrifum fíkniefna verið rekin fyrir héraðsdómi frá því að lagabreytingar urðu með lögum nr. 66/2006. Í allnokkrum þessara mála mældust aðeins fíkniefni í þvagi ökumanns. Í öllum þessum málum hafa ákærðir verið sakfelldir og ökuleyfissvipting jafnframt dæmd.“