Stofnfundur Vina Tíbets

Á sunnudag verður stofnfundur félagsins Vina Tíbets haldinn á Kaffi Hljómalind, Laugavegi 23 kl. 13 og er öllum frjálst að mæta sem vilja styðja við þetta málefni. Í dag, laugardag, klukkan 13 er boðað til vikulegrar mótmælastöðu fyrir utan kínverska sendiráðið.

Mótmælastaðan er til að sýna kínverskum stjórnvöldum að mannréttindabrot þeirra í Tíbet gleymast ekki, sem og að taka þátt í hinni alþjóðlegu bylgju stuðnings til handa Tíbetum og þeirra baráttu fyrir frelsi og mannréttindum, segir í tilkynningu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert