N1 lækkar eldsneytisverð í dag, bensín um 1,20 á lítra og dísil og aðrar tegundir um 1,80 á lítra. Skýring lækkunarinnar er styrking krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar. Segir í tilkynningu frá N1 að þetta sé þriðja lækkun félagsins á eldsneytisverði á tíu dögum.