Þrír sautján ára piltar veittust að sextán ára pilti í gærkvöldi á hjólabrettasvæði við sundlaugina á Selfossi. Árásarmennirnir komu að hjólabrettasvæðinu á tveimur bílum, stigu út og réðust á drenginn sem var á hjólabretti.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi sló einn þremenningana drenginn nokkur hnefahögg í andlitið og víðar. Drengurinn bólgnaði í andlitinu og leitaði til læknis en mun vera óbrotinn.
Lögreglan sagði, að ekki væri vitað hvað árásarmönnunum gekk til en málið verður tekið til rannsóknar.