Skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á konu

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að veitast að konu á veitingastað á Akureyri í september sl. og reyndi að loka hana inni á salerni. Konan fékk m.a. eymsli á höku og á líkamanum.

Fram kemur í dómnum, að maðurinn hefur ekki hlotið refsidóma áður og hann lýsti  fyrir dómi mikilli iðrun vegna brots síns. Hann var dæmdur til að greiða konunni 145 þúsund krónur í bætur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert