Bílstjórar segja að væntanlega hafi verið skotið með öflugum loftriffli á einn flutningabíl, sem stendur nú í Tryggvagötu. Hefur rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgasvæðinu verið kölluð út vegna þessa en mikill viðbúnaður lögreglu er á svæðinu.
Ágúst Fylkisson, talsmaður bílstjóra, sagði við mbl.is, að nokkrir bílstjórar hefðu staðið hægra megin við bílinn þegar framljósið á honum sprakk. Ágúst sagði, að bílstjórar hefðu fengið hótanir verða aðgerða sinna, bæði með SMS og í símtölum.