Karlmaður slasaðist á hendi þegar dýnamít sprakk í skurði í Kambalandi í Hveragerði í síðustu viku.Maðurinn var í skurðgröfu að meitla grjót í skurði þegar allt í einu varð sprenging og grjót þeyttist í framrúðu gröfunnar.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi fékk yfir sig glerbrot og hlaut skrámur í andliti og höndum. Meiðslin voru talin minni háttar og fór maðurinn á eigin vegum til læknis.
Lögreglan segir, að þremur vikum fyrr hafi verið notað dýnamít til að sprengja í skurðstæðinu og allt bendi til að ein túpan hafi ekki sprungið þegar sprengt var en hún sprungið þegar meitillinn hjó í hana.
Vinnueftirlit ríkisins kom á vettvang til rannsóknar.