Tveir varaþingmenn tóku sæti á Alþingi í dag í fyrsta skipti. Þetta eru þau Guðný Hrund Karlsdóttir, sem tekur sæti Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra og þingmanns Samfylkingar í Suðurkjördæmi, og Samúel Örn Erlingsson, sem leysir af Siv Friðleifsdóttur, þingmann Framsóknarflokks í Suðvesturkjördæmi.