Grímseyjarferjan Sæfari fer í sína fyrstu siglingu til Grímseyjar næstkomandi föstudag. Farið verður frá Dalvík kl 10. Stutt athöfn verður um borð í skipinu við komuna til Grímseyjar. Ef veður leyfir verður Grímseyingu boðið í siglingu í kringum eyjuna. Ferjan fer svo til baka frá Grímsey kl. 16.