Óttast var að ungur maður sem fór upp á þak á fjölbýlishúsi við Kleppsveg í Reykjavík í kvöld myndi kasta sér niður, og var lögregla og sjúkra- og slökkvilið kvatt á vettvang. Er maðurinn sá viðbúnaðinn fór hann af sjálfsdáðum niður af þakinu.
Að sögn lögreglu virtist maðurinn vera í mjög annarlegu ástandi, og verður reynt að koma honum undir læknishendur.