Þarf að borga fyrir bitið

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í 100 þúsund króna sekt fyrir að bíta annan karlmann í eyrað og kjálkann og slá hann í andlitið. Þetta gerðist í október í fyrra. Árásarmaðurinn var einnig dæmdur til að greiða hinum manninum 116 þúsund krónur í bætur.

Maðurinn neitaði sök. Hann kannaðist þó við að hafa bitið hinn manninn en sagði að það hafi verið gert í neyðarvörn til að losna úr tökum hans. Dómurinn sakfelldi manninn hins vegar fyrir líkamsárás.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert