Vesturlandsvegur er lokaður í báðar áttir vegna áreksturs rútu og vörubíls rétt norðan við Grundahverfi á Kjalarnesi. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar urðu minniháttar slys á fólki. Vegurinn er lokaður að sunnan við Þingvallaveg og að norðan við Hvalfjarðargöngin að norðanverðu en lögreglan hleypir umferð hjá í skömmtum.
Lögregla hleypir umferð í skömmtum framhjá slysstað við Grundarhverfi. Einungis jeppar og fólksbílar komast framhjá. Miklar tafir eru á umferð og því ökumenn beðnir um að sína þolinmæði.
Jafnframt vill lögregla vara við færðinni á þessum slóðum en mikil hálka er á vegum og skyggni slæmt.
Ökutækin sem lentu í árekstrinum eru stór og loka þau veginum. Óhappið varð skömmu fyrir klukkan hálf átta.