Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu, sem Fasteignamat ríkisins reiknar út, lækkaði um 0,4% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,2%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 1,5% og hækkun síðastliðna 12 mánuði var 9,6%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.