Atvinnuleysi á Íslandi í mars 2008 var 1% líkt og í febrúar og voru að meðaltali 1.674 einstaklingur á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þetta er lítilsháttar fjölgun frá febrúarmánuði, eða um 43 manns, þó atvinnuleysið mælist óbreytt. Fyrir ári síðan, eða í mars 2007, var atvinnuleysið 1,3%.
Aukið atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu
Atvinnuleysi eykst á höfuðborgarsvæðinu um 10% og er nú 0,8% en var 0,7% í febrúar. Á landsbyggðinni minnkar atvinnuleysi um 3,5% og er 1,5% en var 1,6% í febrúar. Atvinnuleysi karla eykst um 6,6% og er 0,9% en var 0,8% í febrúar. Atvinnuleysi kvenna minnkar lítils háttar og mælist 1,3% líkt og í febrúar.
Þeim sem verið hafa á skrá lengur en 6 mánuði fjölgar nokkuð og voru 518 í lok mars en 449 í lok febrúar. Þetta eru þó umtalsvert færri langtímaatvinnulausir en var á sama tíma 2006 og 2007. Þá var 271 atvinnulaus í meira en eitt ár í mars og hefur fjöldi þeirra lítið breyst síðustu mánuði, samkvæmt frétt á vef Vinnumálastofnunar.
Litlar breytingar á nýskráningum atvinnuleyfa
Nýskráningar ríkisborgara frá nýjum ríkjum ESB voru 412 í mars sem er lítið eitt minna en í febrúar þegar nýskráningar voru 573. Gefin voru út 46 ný atvinnuleyfi í mars sem er svipaður fjöldi og að jafnaði síðustu 12 mánuði.
Spá auknu atvinnuleysi
„Oft byrjar að draga úr atvinnuleysi í apríl. Í fyrra minnkaði atvinnuleysið um 3% milli þessara mánaða og var þá 1,1% í apríl en 1,3% í mars. Árið 2001 jókst atvinnuleysi um 12,2% milli þessara mánaða og stóð í stað milli mars og apríl 2002, en á þeim árum fór staða í efnahagsmálum versnandi líkt og um þessar mundir.
Lausum störfum hjá Vinnumálastofnun fjölgaði talsvert eða um 78 milli febrúar og mars og voru 338 í lok mars. Atvinnulausum í lok mars fjölgaði frá lokum febrúar eða um 95, en fækkun var um 105 á sama tíma árið 2007. Þegar allt er talið er því líklegt að atvinnuleysið í apríl 2008 muni aukast og verða á bilinu 1%-1,2%," að því er segir í frétt á vef Vinnumálastofnunar.