Ekkert verður af byggingu kláfs í Skutulsfirði að svo stöddu. Skafti Elíasson, forsvarsmanna Eyrarkláfs, segir í viðtali við Bæjarins besta að hugmyndin hafi verið lögð í saltpækil.
„Það eru engir peningar til í þjóðfélaginu og kláfurinn
verður í saltpækli þar til eitthvað breytist“, segir Skafti. Kláfur upp
á topp Eyrarfjalls á að vera aðdráttarafl fyrir ferðamenn og á
heimasíður Eyrarkláfs segir að helsti markhópur kláfsins séu ferðamenn
sem koma til Ísafjarðar með skemmtiferðaskipum.
Hugmyndir um
byggingu kláfsins komu upp fyrir um tveimur árum og hafa feðgarnir
Úlfar Ágústsson og Úlfur Úlfarsson verið helstu samstarfsmenn Skafta í
undirbúningnum.