Sæfari, nýja Grímseyjarferjan, fór í sína fyrstu siglingu í dag og lagði að bryggju í Grímsey fyrir skömmu en siglingin frá Dalvík tók 3 klukkustundir og 15 mínútur. Segir Garðar Ólason, oddviti Grímseyjarhrepps, að Sæfari eigi eftir að skipta eyjabúa miklu. „Þetta er stór stund og langþráð," sagði Garðar við blaðamann mbl.is.