„Viljum ekki sjá svona aksturslag"

Kristján Möller, samgönguráðherra, og Sturla Jónsson, talsmaður vöruflutningabílstjóra.
Kristján Möller, samgönguráðherra, og Sturla Jónsson, talsmaður vöruflutningabílstjóra. mbl.is/júlíus

„Við viljum ekki sjá svona aksturslag," segir Sturla Jónsson, talsmaður vöruflutningabílstjóra, um atvik sem var sýnt var í fréttum Stöðvar tvö í kvöld.  Þar var sýnt hvernig vörubílstjóri sveigði í veg fyrir fólksbíl, en nokkrir vörubílar keyrðu hægt upp Ártúnsbrekkuna í dag í mótmælaskyni. 

Sturla segist fordæma slíkt aksturslag og segir að sér hafi verið brugðið við að sjá þetta.  „Við viljum ekki stofna fólki í hættu í umferðinni og vonum að bílstjórar sem eru að mótmæla geri ekki svona lagað aftur," segir Sturla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert