Hálkublettir eru á Hellisheiði annars eru helstu leiðir greiðfærar á
Suðurlandi. Á Vesturlandi er greiðfært þó eru hálkublettir í Svínadal. Á Vestfjörðum er víða greiðfært á lálendi en hálka og hálkublettir á
fjallvegum. Eyrarfjall er ófært.
Hálka er á Öxnadalsheiði. Hálkublettir eru á Siglufjarðarvegi, flestar aðrar leiðir eru greiðfærar. Ófært er um Lágheiði.
Á Norðaustur- og Austurlandi er hálka og hálkublettir og sumstaðar
snjóþekja og skafrenningur, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.