Margir hafa lagt leið sína í verslun Bónuss í Faxafeni í morgun og er nú löng biðröð fyrir utan verslunina. Bónus auglýsti í dag 30% afslátt á öllum vörum í búðinni en verslunin verður lokuð í nokkra daga frá og með morgundeginum. Fyrirhugað er að stækka og endurbæta verslunina.