Hálka á Hellisheiði og í Þrengslum

Hálkublettir eru á Hellisheiði.
Hálkublettir eru á Hellisheiði. mbl.is/Rax

Hálkublettir eru á  Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er hálka,
snjóþekja og og sumstaðar þæfingsfærð á flestum leiðum.

Á Vesturlandi eru allar helstu leiðir greiðfærar.  Á Vestfjörðum og á Norðurlandi er víða greiðfært á láglendi en hálka og hálkublettir á fjallvegum. Ófært er um Lágheiði.

Á Norðaustur- og Austurlandi er hálka og hálkublettir á flestum leiðum.  Á Suðausturlandi er greiðfært á flestum leiðum þó eru hálkublettir og
éljagangur frá Vík og langleiðina að Skaftafelli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert