Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst í kvöld tilkynning um að eldur hafi kviknað á svölum húss við Mánagötu. Þar kviknaði í grilli á svölum annarrar hæðar og blés töluverðum eldi úr gaskút. Að sögn slökkviliðs náðist að slökkva eldinn í tæka tíð.