Mikið er um að tilkynnt sé um lausa hesta við þjóðveginn í umdæmi Hvolsvallarlögreglunnar og skapar þetta mikla hættu. Hafa orðið slys af þessum sökum undanfarið, að því er varðstjóri greinir frá.
Í vikunni voru 27 teknir fyrir að aka of hratt í umdæminu, en sá sem hraðast ók var á 139 km hraða. Sjö óku á yfir 120 km hraða þar sem 90 km hraði er leyfður, segir ennfremur í tilkynningu frá varðstjóra.
Frá áramótum hafa 340 verið teknir fyrir að aka of hratt í umdæminu. Þar af óku 53 á yfir 120 km hraða. Sá sem hraðast ók var á 171 km hraða.
Engin umferðaróhöpp voru tilkynnt þessa vikuna.