Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um sinubruna á Kjalarnesi um fimmleytið í dag. Að sögn Slökkviliðsins var einn bíll sendur á vettvang og búið er að ná tökum á brunanum. Að sögn slökkviliðsins var engin hætta á ferð, og hafði bruninn ekki áhrif á umferðina.