Brotist inn í Slægingarþjónustuna í Sandgerði

mbl.is/Július

Brotist var inn í fyrirtækið Slægingarþjónustan að Strandgötu 2 í Sandgerði aðfaranótt sunnudagsins 13. apríl 2008.   Þaðan var stolið Toyota rafmagnslyftara árgerð 1998, appelsínugulum að lit með vinnuvélanúmerið JL-3481. 

Einnig var stolið viðkomandi hleðslutæki.  Lögreglan biður þá, sem gætu gefið einhverjar upplýsingar um hvarf lyftarans að láta lögregluna á Suðurnesjum vita.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert