RARIK ohf. hefur stofnað dótturfélagið RARIK Orkuþróun til að halda utan um ráðgjafa- og þróunarverkefni RARIK innanlands og erlendis. Meginmarkmiðið með stofnun félagsins er að tryggja áframhaldandi vöxt og verðmætasköpun innan RARIK samstæðunnar.
Í tilkynningu frá RARIK segir, að í kjölfar stefnumótunarvinnu stjórnar félagsins í árslok 2007 hafi verið ákveðið að stofna sjálfstætt fyrirtæki til að halda utan um ráðgjafa- og þróunarverkefni RARIK innanlands og erlendis. Mikilvægt markmið sé einnig að skapa vettvang erlendis fyrir starfsmenn samstæðunnar svo og aðra íslenska sérfræðinga og stuðla þannig að útflutningi þekkingar á orkumálum og nýtingu umhverfisvænna orkulinda.
„Í ljósi þess að RARIK hefur fyrst og fremst sinnt uppbyggingu og rekstri flutnings- og raforkudreifikerfa, lítilla og meðalstórra vatnsaflsvirkjana og hitaveitna er eðlilegt að þungamiðjan í starfsemi þessa nýja félags verði á þeim vettvangi. Þetta útilokar þó alls ekki aðild að stærri verkefnum eða þátttöku á tengdum verkefnasviðum, eins og t.d. vindorkuverum.
Ákveðið var að leggja félaginu til beina fjármuni í formi hlutafjár, en einnig verða eignarhlutar í erlendum verkefnum sem RARIK er þátttakandi í, svo sem Blåfall Energi í Noregi, lagðir inn í félagið. Ennfremur er gert ráð fyrir að eignarhlutar í þróunarverkefnum innanlands verði lagðir inn í fyrirtækið t.d. í Héraðsvötnum ehf. og Sunnlenskri orku ehf," segir í tilkynningu RARIK.
Steinar Friðgeirsson er framkvæmdastjóri RARIK Orkuþróunar ehf. Stjórn félagsins skipa þeir Tryggvi þór Haraldsson, formaður, Ólafur Hilmar Sverrisson og Lárus Blöndal.
Erlent hjáheiti félagsins er RARIK Energy Development Ltd.