Sautján ára stúlka, sem tilkynnti lögreglu aðfaranótt sunnudags að sér hefði skömmu áður verið nauðgað á salerni á skemmtistað í Reykjanesbæ, hefur ákveðið að kæra ekki. Jóhannes Jensson hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum segir að þar með sé málinu lokið af hálfu lögreglunnar, engin rannsókn verði gerð á málinu. Jóhannes segist engar skýringar hafa á því að stúlkan hafi fallið frá því að kæra. Hann segir erfitt að rannsaka mál þegar samvinna við brotaþola er ekki fyrir hendi sem yfirleitt er auk þess höfuðvitni í viðkomandi máli.