432 ökumenn óku yfir hámarkshraða á Hringbraut

mbl.is/Július

Brot 432 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.  Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Hringbraut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót en á u.þ.b. átta klukkustundum fóru 7.553 ökutæki þessa akstursleið.

Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 76 km á klukkustund en þarna er 60 km hámarkshraði.  Áttatíu og þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 108.

Við hraðamælingar á sama stað í ársbyrjun var meðalhraði hinna brotlegu lægri. Þá óku sömuleiðis mun færri á 80 km hraða eða meira.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert