6,5% atvinnuleysi hjá 16-24 ára fólki

Á fyrsta ársfjórðungi 2008 voru að meðaltali 4200 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 2,3% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 2,5% hjá körlum og 2,2% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 6,5%.


Á fyrsta ársfjórðungi 2007 mældist atvinnuleysi 2% og var það sama hjá körlum og konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 6,9%.

Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar, sem eru ekki í vinnu en eru í námi, flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.

Atvinnuþátttakan var 81%
Fjöldi starfandi á fyrsta ársfjórðungi 2008 var 174.000 manns og fjölgaði um 1200 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 178.100 manns sem jafngildir 81,0% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 85,5% og kvenna 76,1%.

Á fyrsta ársfjórðungi 2007 voru alls 176.300 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 82,2%. Atvinnuþátttaka karla var 86,2% og kvenna 77,9%.

Vinnutími 40,8 stundir á viku
Á fyrsta ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 40,8 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 45,5 klst. hjá körlum en 35,1 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 46,2 klst., 49 klst. hjá körlum en 41,7 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í hlutastarfi voru 22 klst., 20 klst. hjá körlum en 22,8 klst. hjá konum.

Á fyrsta ársfjórðungi 2007 var fjöldi vinnustunda 41,6 klst., 47,1 klst. hjá körlum en 34,7 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 47,4 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 23,3 klst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert