Aflaverðmæti dróst saman í janúar

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 4,7 milljörðum króna í janúar 2008 samanborið við 5,8 milljarða í janúar 2007, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Aflaverðmæti hefur dregist saman um 1,1 milljarð eða 18,3% milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var 3,7 milljarðar en var 4,6 milljarðar í janúar 2007 og er samdrátturinn því 18,7%. Verðmæti þorskafla var 1,9 milljarðar og var það samdráttur um 25,1%. Aflaverðmæti ýsu nam 1,1 milljarði, sem er 11,9% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 9,6%, í 247 milljónir.

Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 10,1%, nam 220 milljónum. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst saman um 18,2% og nam 796 milljónum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 321 milljón.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu, var 1,8 milljarðar króna. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam 1,0 milljarði. Aflaverðmæti sjófrystingar var rúmur milljarður og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 758 milljónum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert